Nú er tíminn til að fara skipuleggja ferðalög vetrarins. Þó það hljómi kannski ekki spennandi fyrir okkur sem búum hér á klakanum þá er gaman að fara til annarra landa en sólarlanda á vetrin. Það eru nokkrir staðir í heiminum sem eru líka einstaklega fallegir að vetri til.
Yosemite-þjóðgarðurinn í Kaliforníu í Bandaríkjunum er hvað vinsælastur á sumrin, en þá er líka fullt af ferðamönnum. Þjóðgarðurinn er hinsvegar líka gullfallegur þegar vetur konungur hefur klætt hann snjó.
Neuschwanstein-kastalinn er eins og úr Disney-ævintýri. Hann er það líka á vetrum. Höfundar Þyrnirósar fengu bókstaflega hugmyndina að kastalanum í ævintýrinu þegar þeir sáu Neuschwanstein-kastala. Svo er líka hægt að ímynda sér að maður sé staddur í Frosinn-ævintýrinu þegar maður er staddur þar.
Borgin sem aldrei sefur er líka skemmtileg á vetrum. Í Central Park er hægt að fara á skauta að vetri til. Síðan er alltaf stutt í næsta kaffhús þegar maður er frosinn inn að beini.
Richmond Park er þrisvar sinnum stærri en Central Park og helsta leiksvæði Lundúnabúa bæði vetur og sumar. Þar er líka hægt að koma auga á allskonar dýr, til dæmis hjartardýr.
Það er eins og að stíga inn í vetrarland að koma til Sánkti Pétursborgar að vetri til.
Norðmenn eru heimsmeistarar í afþreyingu á veturna. Höfuðborgin er bara enn betri að vetri til. Þá er einnig hægt að fara í ferðir út úr borginni til að fara á skíði eða í göngu.
Shirakawa-go er kannski ekki lýsandi fyrir Japan en það er svo sannarlega töfrandi, sérstaklega að vetri til. Það er viðburður á hverjum vetri þegar ljósin eru tendruð í þorpinu. Hyggist þú fara þangað er best að bóka gistingu langt fram í tímann.