Silja Bára Ómarsdóttir, dósent við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, mun verja jólunum í faðmi keisaramörgæsa og hnúfubaka. Langþráður draumur er að rætast hjá doktornum sem hefur lengi dreymt um að komast til Suðurskautslandsins. Með ferðalaginu nær hún einnig merkum áfanga þar sem Suðurskautslandið var eina heimsálfan sem hún hafði ekki heimsótt.
„Hér er hásumar og þetta er almennt talinn besti tíminn til að vera hér. Birtan er einstök og hitastigið bara við frostmark,“ segir Silja Bára, sem var stödd rétt við Browns Bluff, nyrsta tanga Suðurskautslandsins, þegar blaðamaður náði sambandi við hana rétt fyrir jól. „Við erum að vonast til að fara í land, en úti er 85 kílómetra vindur á klukkutíma [24 m/sek] svo við höldum kyrru fyrir um borð í bili.“
En hvernig rættist draumurinn um að komast til Suðurskautslandsins?
„Ég kynntist fyrirtækinu sem ég ferðast með fyrir nokkrum árum, og ákvað í ár að athuga hvort það væri laust. Það var allt fullt, en þau settu mig á biðlista og fyrir fjórum vikum fékk ég tölvupóst um að það hefði losnað pláss. Þá var bara að kaupa flugmiðann og hefja undirbúning,“ segir Silja Bára.
Ferðalagið sjálft hófst fyrir viku síðan og hófst eins og svo mörg ferðalög Íslendinga með flugi til London. Þaðan tók við næturflug til Buenos Aires í Argentínu. Héðinn Halldórsson, vinur Silju Báru, er með henni í för og eru þau hluti af hóp sem telur alls kyns fræðimenn og ljósmyndarar.
„Við hittum hópinn í Buenos Aires og fórum í skoðunarferð um borgina, gistum eina nótt og flugum svo með leiguflugi til Ushuaia. Þar tók við önnur skoðunarferð á báti um Beagle Channel, sem Charles Darwin nefndi. Þar fórum við svo um borð í National Geographic Explorer, sem tekur um það bil 150 farþega og lögðum af stað. Siglingin um Drake Passage var sú besta sem nokkur um borð hefur upplifað og við vorum um tólf tímum fljótari á áfangastað en búist var við, það er til Suður-Hjaltlandseyja þar sem ég hitti mínar fyrstu mörgæsir,“ segir Silja Bára, og gleðin leynir sér ekki.
Dýralífið á Suðurskautinu heillar og hefur Silja Bára til að mynda séð hnúfubakskú og kálf matast á siglingunni. „Í brúnni er svo fylgst náið með dýralífinu í kringum okkur og kallað út þegar eitthvað spennandi er að gerast.“
Silja Bára verður á Suðurskautinu fram á föstudag ef veður leyfir og hlakkar hún til að upplifa nýja og framandi hluti næstu daga. „Ég vonast helst til að sjá sem flestar tegundir mörgæsa og einkum keisaramörgæsir, en þær voru hér á svæðinu fyrir viku síðan.“
Sá draumur rættist eftir að blaðamaður ræddi við Silju Báru, líkt og sjá má á myndunum sem hér fylgja.
Jólin eru svo sannarlega með óhefðbundnara móti en Silja Bára tekur tilbreytingunni fagnandi. Hún hefur verið iðn við að deilda myndum af ferðalaginu á samfélagsmiðlum og þegar blaðamaður rak augun í myllumerkið #skröggaráskautinu lá beinast við að spyrja hvort henni væri jafnvel í nöp við jólin?
„Við Héðinn erum hvorugt mikið gefin fyrir jólin, en Gulli vinur okkar sem kynnti okkur er mesta jólabarn sem ég þekki. Hann kallar okkur jólaskrögga, svo þetta varð til sem brandari upp úr því,“ segir hún.
Aðspurð um árið sem er að líða og hvað stendur upp úr segir Silja Bára að árið hafi verið alveg frábært, enda árið uppfullt af afrekum hjá doktornum. „Ég tók loksins við diplómunni fyrir doktorsgráðuna mína og hélt veislu sem líður seint úr minni, með fjölskyldu, vinum, samstarfsfólki og nemendum. Þá fékk ég verðlaun bæði fyrir doktorsritgerðina mína og framlag til kennslu við HÍ, og árinu lýkur með mínum öðrum sumarsólstöðum. Það getur varla nokkuð toppað þetta, en ég hlakka nú samt til næsta árs,“ segir hún.
Silja Bára er líklega víðförlasti stjórnmálafræðingur landsins, sem sérhæfir sig í alþjóðastjórnmálum í þokkabót, og því var ekki úr vegi að spyrja hvað stæði upp úr að hennar mati í stjórnmálunum á árinu.
„Mér hefur þótt magnað að fylgjast með loftslagsverkföllum ungs fólks breiðast út um heiminn og vona að raddir þeirra fari að hafa áhrif,“ segir Silja Bára, en bætir við að henni þyki það sorglegt að ekki skyldi nást meiri árangur á loftslagsfundinum í Madríd fyrr í þessum mánuði. „Ég held að það verði að leggja meiri vinnu í þennan málaflokk á næsta ári og áratugum.“