Ein vinsælasta instagramstjarna Íslands, Sunneva Eir Einarsdóttir, er stödd erlendis. Sunneva flaug út á heitan stað fyrir helgi en ekki þykir ólíklegt að hún eyði áramótunum með kærastanum, Benedikt Bjarnasyni, á Flórída. Benedikt er sonur Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra.
Í gær, mánudag, birti Sunneva myndband á Instgram þar sem sást glitta í Benedikt. Fjármálaráðherra var einnig staddur erlendis samkvæmt heimildum ferðavefjar mbl.is. Hann og fjölskylda hans eru ekki óvön að dvelja á Flórída þar sem foreldrar Bjarna eiga einbýlishús þar.
Á sunnudaginn var Sunneva meðal annars í sólbaði í 26 stiga hita. Sunneva, sem er dugleg að sýna frá lífi sínu á Instagram, hefur passað sig að sýna ekki mikið frá ferðafélögum sínum á samfélagsmiðlinum. Benedikt hefur birt myndir í sögu á Instagram af golfbíl, golfvelli og krókódíl. Nóg er af góðum golfvöllum á Flórída og eitthvað af krókódílum.
View this post on Instagram1, 2, 3, 4 I declare a thumb war 😼 next up —> vacay ✈️
A post shared by Sunneva Eir Einarsdóttir🌸 (@sunnevaeinarss) on Dec 26, 2019 at 9:16am PST