Karlmaður frá Síle hefur verið handtekinn eftir að hafa eyðilagt heilaga styttu á Páskaeyju. Maðurinn keyrði á styttuna á jeppabifreið sinni.
Styttan sem hann keyrði á er ein af mörgum moai-styttum á eyjunni en Ma'u Henua-samfélagið sér um stytturnar og telur þær vera heilagar.
Bæjarstjórinn Pedro Edmunds Paoa kallar nú eftir hertari umferðarlögum á eyjunni til að vernda sytturnar sem eru yfir þúsund talsins.
„Það voru allir á móti því að setja umferðarreglur fyrir bifreiðar í kringum heilagar slóðir. En við sem sveitarstjórn ræddum um hætturnar og vissum vel hvað aukinn fjöldi ferðamanna og íbúa gæti þýtt,“ sagði bæjarstjórinn í viðtali við El Mercurio.
Ma'u Henua-samfélagið birti mynd af skemmdarverkinu á Facebook-síðu sinni og lýsti yfir sorg samfélagsþegnanna að svona hafi farið fyrir styttunni.