Jóladrottningin sjálf, Mariah Carey, ætlar að eyða jólunum í Aspen í Colorado í Bandaríkjunum. Carey dvelur yfirleitt þar um jólin en nú var tvísýnt um hvort hún kæmist vegna kórónuveirunnar.
Carey lætur þó ekkert stoppa sig en heimildir TMZ herma að hún hafi leigt sér lúxushúsbíl og keyrt með alla fjölskylduna til Aspen frá Los Angeles. Rúmlega 13 klukkustunda akstur er frá Los Angeles upp í fjöllin til Aspen og því mikilvægt að láta fara vel um sig á leiðinni.
Tvö svefnherbergi eru í húsbílnum og er Carey sögð hafa jólaskreytt bílinn fyrir ferðalagið.
Carey velur að dvelja yfir jólin í Aspen því henni finnst það jólalegt. Í viðtali við GQ í fyrra sagðist hún elska snjóinn, fjöllin og að horfa upp í stjörnubjartan himininn.