Áhrifavaldurinn Sunneva Eir Einarsdóttir dekraði heldur betur við kærasta sinn Benedikt Bjarnason, son Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra, í gær. Benedikt, betur þekktur sem Bensi, fagnaði 23 ára afmæli sínu í gær.
Parið hélt upp afmælið á Suðurlandinu, nánar tiltekið í Panorama Glass Lodge, sem er gríðarlega vinsæll áfangastaður áhrifavalda sem og annarra.