Sýningin The Real Wild West verður frumsýnd í FlyOver Iceland í dag. Sýningin er nýjasta mynd FlyOver Attractions og sýnir stórbrotið landslag Vesturríkja Bandaríkjanna ásamt ótrúlegum atriðum þar sem þyrlur, þotuhreyfilsbíll og áhættuleikarar koma við sögu.
Á meðal helstu kennileita eru Tahoe vatn, Zion þjóðgarðurinn, The Strip í Las Vegas og sjálft Miklagljúfur.