Hjónin Inga Lind Karlsdóttir, eigandi framleiðslufyrirtækisins Skot, og Árni Hauksson fjárfestir eru stödd í Austurríki um þessar mundir. Hjónin eru í skíðafríi með fjölskyldunni og hefur Inga Lind sýnt frá ferðinni á Instagram.
Dóttir þeirra, kraftlyftingakonan Arnhildur Anna, er einnig með í för og hefur hún birt myndir og myndbönd úr ferðinni.
Fjöldi Íslendinga hefur sótt skíðabrekkur Austurríkis heim undanfarnar vikur enda er þar ein bestu skíðasvæði heims að finna. Á meðal þeirra sem hafa skellt sér út eru stjörnuhjónin Jógvan Hansen og Hrafnhildur Jóhannesdóttir og Yesmine Olsson og Arngrímur Fannar Haraldsson. Um helgina fóru leikkonan Kristín Pétursdóttir og áhrifavaldurinn Birgitta Líf Björnsdóttir einnig út, svo það er margt um manninn í Austurríki um þesar mundir.