Bjóða öllum starfsmönnum til Tenerife

Yolk Recruitment Ltd. býður öllum starfsmönnum sínum til Tenerife.
Yolk Recruitment Ltd. býður öllum starfsmönnum sínum til Tenerife. AFP

Ráðningastofan Yolk Recruitment Ltd. ætlar að bjóða öllum starfsmönnum sínum í fjögurra daga ferð til Tenerife í byrjun apríl. Fá starfsmennirnir frí á meðan og greiðir fyrirtækið allan kostnað. Fyrirtækið segir frá þessu í færslu á LinkedIn.

Yolk er staðsett í Cardiff í Wales en með ferðinni vill fyrirtækið verðlauna starfsfólk fyrir vel unnin störf í heimsfaraldrinum. Allir starfsmenn fá að fara í ferðina, ekki bara yfirmenn og millistjórnendur en fyrirtækið telur alls 55 starfsmenn. 

Þau sem voru ráðin í upphafi árs 2022 fá einnig að koma með í ferðina þrátt fyrir að hafa ekki unnið í faraldrinum. 

Starfsmenn fyrirtækisins munu dvelja á H10 Costa Adelje Palace hótelinu á vesturströnd Tenerife. Mun ferðin kosta í það minnsta 100.000 pund eða rúmar 16 milljónir króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert