Í Evrópu er að finna fjölda magnaðra borga sem gaman er að heimsækja. Þær vinsælustu eru Róm á Ítalíu og París í Frakklandi auk fjölda annarra borga. Condé Nast Traveller tók saman nokkrar af vanmetnustu borgum álfunnar sem vert er að heimsækja.
Þar á meðal eru Þrándheimur í Noregi, Narbonne í Frakklandi, Gdansk í Póllandi, Innsbruck í Austurríki og Vilníus í Litháen.
- Þrándheimur í Noregi
- Tírana í Albaníu
- Zamora á Spáni
- Trogir í Króatíu
- Narbonne í Frakklandi
- Petworth í Bretlandi
- Þessalóníka í Grikklandi
- Ohrid í Norður Makedóníu
- Cork á Írlandi
- Gdansk í Póllandi
- Skanör og Falsterbo í Svíþjóð
- Tríeste á Ítalíu
- Mostar í Bosníu og Hersegóvínu
- Innsbruck í Austurríki
- Vilníus í Litháen
- Ríga í Lettlandi
- Tíblisi í Georgíu
- Vila Real de Santo António í Portúgal
- Bern í Sviss
- Opatija í Króatíu
- Lille í Frakklandi
- Appingedam í Hollandi