París í Frakklandi er ein vinsælasta borg Evrópu, en það er ekki að ástæðulausu. Borgin, sem oft er kölluð borg ástarinnar, býður ferðalöngum upp á ótrúlega upplifun, mikla fegurð og rómantíska stemningu.
Í borginni búa yfir 11 milljónir manns, en hún er stór og ótal margt þar sem vert er að skoða. En í hvaða hverfi ætli sé best að vera?
Ferðavefur Condé Nast Traveller er ekki síður hugfanginn af París en við hin, en til að auðvelda ferðalöngum að skipuleggja næsta ferðalag til borgarinnar var gerður listi yfir fimm skemmtilegustu hverfin í París.
Montmartre
Margir segja Montmartre vera fallegasta hverfið í París, enda guðdómlegar byggingar og krúttlegar götur sem prýða hverfið.
Ljósmynd/Unsplash/Bastien Nvs
Pigalle
Tignarlegar götur frá 19. öld einkenna Pigalle-hverfið sem var áður þekkt sem rauða hverfið.
Ljósmynd/Unsplash/Guillaume Didelet
Le Marais
Le Marais-hverfið er friðsælt og hinn fullkomni staður fyrir arkitektúrunnendur sem og þá sem vilja kíkja í skemmtilegar búðir.
Ljósmynd/Unsplash/Nicolas Solerieu
Saint-Germain-des-Prés
Hverfið Saint-Germain-des-Prés er stútfullt af gamaldags kaffihúsum, flottum hótelum og skemmtilegum verslunum. Þar á meðal er Ladurée þar sem þú færð töfrandi makkarónur.
Ljósmynd/Unsplash/Siret K
7. hverfi
Eiffel-turninn er staðsettur í 7. hverfi Parísar, en það er hreinlega ekki hægt að heimsækja París án þess að bera turninn augum.
Ljósmynd/Unsplash/Elina Sazonova