Airbnb kynnir ævintýralegar nýjungar

Airbnb kynnir glænýja möguleika á heimasíðu sinni!
Airbnb kynnir glænýja möguleika á heimasíðu sinni! Samsett mynd

Hefur þig alltaf dreymt um að gista í klukkuturni Orsay-minjasafnsins í París? Eða í húsi tröllkallsins Shrek úr samnefndri teiknimynd? Nú eða í alvöru Barbí-húsi í Malibu? Nú geta þeir draumar ræst!

Bókunarvefur Airbnb kynnti á dögunum nýjung á heimasíðu sinni þegar þeir bættu við nýjum flokki sem ber heitið „icons“ og inniheldur ellefu einstakar upplifanir sem hægt er að bóka. Á heimasíðunni kemur fram að í flokknum séu „óvenjulegar upplifanir sem hýstar eru af bestu nöfnunum í tónlist, kvikmyndum, sjónvarpi, myndlist, íþróttum og fleira.“

Á meðal þess sem boðið er upp á er gisting í hinu eftirminnilega húsi úr Pixar-kvikmyndinni Up í Nýju-Mexíkó, í klukkuturni Orsay-minjasafnsins í París í Frakklandi, á Ferrari-safni í Ítalíu, á heimili teiknimyndapersónunnar Shrek í skosku hálöndunum, í hinu goðsagnakennda Home Alone-húsi og á heimili Barbí við ströndina í Malibu.

Nú er boðið upp á ævintýralega gistingu í húsinu úr …
Nú er boðið upp á ævintýralega gistingu í húsinu úr teiknimyndinni frægu Up. Ljósmynd/Airbnb.com
Klukkuturni Orsay-minjasafnsins í París var breytt í glæsilega gistingu.
Klukkuturni Orsay-minjasafnsins í París var breytt í glæsilega gistingu. Ljósmynd/Airbnb.com
Er þetta draumur bílaunnandans?
Er þetta draumur bílaunnandans? Ljósmynd/Airbnb.com
Má bjóða þér að gista á heimili Shrek?
Má bjóða þér að gista á heimili Shrek? Ljósmynd/Airbnb.com
Flestir muna eftir húsinu úr hinni frægu kvikmynd Home Alone …
Flestir muna eftir húsinu úr hinni frægu kvikmynd Home Alone sem kom út árið 1990. Ljósmynd/Airbnb.com
Ken býður gestum að gista í húsi Barbí við ströndina …
Ken býður gestum að gista í húsi Barbí við ströndina á Malibu! Ljósmynd/Airbnb.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert