58 ára í fantaformi á Maldíveyjum

Það væsir ekki um leikkonuna!
Það væsir ekki um leikkonuna! Samsett mynd

Leikkonan Elizabeth Hurley dustaði rykið af gamalli myndavél sem hún hafði ekki notað í heil 20 ár og smellti nokkrum sjóðheitum bikinímyndum á ströndinni. Hurley er í fantaformi og hugsar vel um heilsuna, en hún varð 58 ára á síðasta ári.

Hurley er stödd í sólríku fríi á Maldíveyjum um þessar mundir þar sem hún hefur notið þess að sóla sig á ströndinni. Hún hefur verið dugleg að leyfa fylgjendum sínum á Instagram, sem eru um 2,9 milljónir, að fylgjast með fríinu. 

„Annar dýrðardagur í paradís og halló gamli vinur, Leica-myndavél – hún fannst í rykugum kassa í vinnuherberginu mínu, ónotuð í 20 ár. Svo miklu betri en sími,“ skrifaði leikkonan við strandarmyndirnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert