Kvikmyndin Hafið hreppti átta Edduverðlaun á uppskeruhátíð Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar í kvöld og vann í öllum þeim flokkum sem tengdust leiknum kvikmyndum nema einum. Hafið var m.a. valin besta myndin og framlag Íslendinga til Óskarsverðlauna, Baltasar Kormákur var valinn besti leikstjórinn, Elva Ósk Ólafsdóttir var valin besta leikkonan í aðalhlutverki, Gunnar Eyjólfsson besti karlleikarinn í aðalhlutverki, Herdís Þorvaldsdóttir var valin besta leikkonan í aukahlutverki og Sigurður Skúlason besti karlleikarinn í aukahlutverki.
Dorrit Moussaieff og Arnar Jónsson afhentu verðlaun fyrir kvikmynd ársins. Baltasar Kormákur sagði, þegar hann tók við verðlaununum að hann tileinkaði verðlaunin Þjóðleikhúsinu því án leikhússins væri kvikmyndagerðin fátækari. Hann sagðist hafa haft af því ómælda ánægju að sjá hvern stórleikarann á fætur öðrum, sem starfað hefðu í leikhúsinu, taka við Edduverðlaunum.
Gunnar Eyjólfsson var staddur í Bled í Slóveníu með íslenska skáklandsliðinu og tók við verðlaununum gegnum farsíma Baltasars Kormáks.
Áramótaskaup Sjónvarpsins var valið besta leikna sjónvarpsverkið, Í skóm drekans var valin besta heimildarmyndin, Af fingrum fram var valinn besti sjónvarpsþátturinn, Sverrir Sverrisson var valinn besti sjónvarpsmaðurinn í kosningum á mbl.is, Árni Snævarr besti sjónvarpsfréttamaðurinn. Þá afhenti Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra Magnúsi Magnússyni sjónvarpsmanni heiðursverðlaun Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar.
Á áttunda hundrað manns hafði atkvæðisrétt í ÍKSA og vógu 70% í kosningunni en kjör almennings á mbl.is vó 30%.
Verðlaunahafarnir voru eftirtaldir:
- Bíómynd ársins
Hafið
Leikstjóri: Baltasar Kormákur.
Handrit: Baltasar Kormákur og Ólafur Haukur Símonarson. Framleiðandi: Sögn ehf./Blueeyes Productions.
- Leikstjóri ársins
Baltasar Kormákur fyrir Hafið.
- Leikkona ársins í aðalhlutverki
Elva Ósk Ólafsdóttir í Hafinu.
- Karlleikari ársins í aðalhlutverki
Gunnar Eyjólfsson í Hafinu.
- Leikkona ársins í aukahlutverki
Herdís Þorvaldsdóttir í Hafinu.
- Karlleikari ársins í aukahlutverki
Sigurður Skúlason í Hafinu og Gemsum.
- Handrit ársins
Baltasar Kormákur og Ólafur Haukur Símonarson fyrir Hafið
- Sjónvarpsþáttur ársins
Af fingrum fram
Umsjón: Jón Ólafsson. Dagskrárgerð: Jón Egill Bergþórsson og Jón Ólafsson. Framleiðandi: Sjónvarpið.
- Útlit myndar
Gunnar Karlsson fyrir listræna stjórnun á Litlu lirfunni ljótu.
- Fagverðlaun ársins - hljóð og mynd
Valdís Óskarsdóttir fyrir klippingu á Hafinu.
- Leikið sjónvarpsverk ársins
Áramótaskaup RÚV 2001
Framleiðandi: Sjónvarpið.
Handrit: Hallgrímur Helgason, Hjálmar Hjálmarsson og Óskar Jónasson.Leikstjóri: Óskar Jónasson.
- Heimildarmynd ársins
Í skóm drekans
Stjórnandi: Árni og Hrönn Sveinsbörn. Handrit: Árni og Hrönn Sveinsbörn. Framleiðandi: Tuttugu geitur, Böðvar Bjarki Pétursson.
- Stuttmynd ársins
Litla lirfan ljóta
Leikstjóri: Gunnar Karlsson. Handrit: Friðrik Erlingsson. Framleiðandi: CAOZ hf.
- Tónlistarmyndband ársins
Á nýjum stað (Sálin hans Jóns míns)
Leikstjórar: Samúel Bjarki Pétursson og Gunnar Páll Ólafsson. Framleiðandi: Hugsjón kvikmyndagerð.
- Fréttamaður ársins
Árni Snævarr Stöð 2. - Sjónvarpsmaður ársins
Sverrir Sverrisson á Popp Tíví
- Heiðursverðlaun ÍKSA
Magnús Magnússon
Gunnar Eyjólfsson í Hafinu.
Elva Ósk Óskarsdóttir í Hafinu.
Herdís Þorvaldsdóttir í Hafinu.
Sigurður Skúlason í Hafinu.
Þátturinn Af fingrum fram, sem Jón Ólafsson stjórnar, var valinn sjónvarpsþáttur ársins.
Sverrir Sverrisson á Popp Tíví, sem m.a. gekk hringinn í kringum landið í sumar, var valinn sjónvarpsmaður ársins.
Elva Ósk Ólafsdóttir með Edduna sem hún hlaut fyrir leik sinn í Hafinu.
mbl.is/Jim Smart
Magnús Magnússon fékk heiðursverðlaun ÍKSA.
mbl.is/Jim Smart
Herdís Þorvaldsdóttir fékk Eddu fyrir bestan leik í aukahlutverki.
mbl.is/Jim Smart
Systkinin Árni og Hrönn Sveinsbörn taka við Eddunni fyrir bestu heimildarmyndina.
mbl.is/Jim Smart