Jónas Örn Helgason fór með sigur úr býtum í spurningaþættinum Meistaranum á Stöð 2 í kvöld og hreppti fimm milljónir króna. Jónas keppti við Ingu Þóru Ingvarsdóttir og vann 13:12.
Jónas er 21 árs verkfræðinemi og stúdent frá MH. Í úrslitaþættinum var hann kominn með öruggt forskot fyrir síðustu tvær spurningarnar en tók þá áættu að svara aukaspurningu og þegar hann gat ekki svarað henni fór munurinn niður í fimm stig. Jónas svaraði hins vegar síðustu spurningunni sem hann fékk og tryggði sér sigurinn.