Kvikmyndastjörnurnar Brad Pitt og Angelina Jolie eru nú sögð leggja drög að því að bæta fjórða barninu í barnahóp sinn. Hjónaleysin eiga þegar tvö börn sem Jolie ættleiddi og dóttur sem fæddist í maí. Þá eru þau sögð hafa í hyggju að ættleiða nokkurra ára gamlan dreng til að sýna stuðning sinn við það sjónarmið að fólk eigi ekki aðeins að ættleiða ungabörn. Ekki hefur verið upplýst hvenær þau hyggjast stækka fjölskylduna enn á ný. Þetta kemur fram á fréttavef Ananova.
Þá munu stjörnurnar hafa endurheimt minniskort úr einkamyndavél sinni en kortinu hafði verið stolið og fjölmiðlum boðnar myndir af því til kaups. Maður er nú í haldi lögreglunnar í Kaliforníu grunaður um að hafa reynt að selja myndirnar