Poppprinsessan Britney Spears og eiginmaður hennar Kevin Federline eru nú sögð ætla að koma fram í annarri sjónvarpsþáttaröðinni um líf sitt til að reyna að sannfæra almenning um það að hjónaband þeirra sé ekki í molum.
Söngkonan, sem á von á öðru barni þeirra Federline, er sögð svo þreytt á sögusögnum um hjónabandsvandræði þeirra að hún vilji nú allt til vinna til að binda enda á þær. Fyrri þáttaröðin um þau hjónin þótti hins vegar ekki bæta ímynd hennar.