Magni Ásgeirsson er einn af 15 þátttakendum í keppninni um söngvara hljómsveitarinnar Supernova sem er skipuð Tommy Lee úr Motley Crüe, Jason Newstead úr Metallica og Gilby Clarke úr GunsN’Roses.
Fyrsti þátturinn þar sem keppendurnir 15 spreyta sig á rokklögum er á dagskrá Skjá eins á miðnætti í kvöld. Þátturinn er sýndur á sama tíma og í Bandaríkjunum svo við Íslendingar getum tekið þátt í kosningu um söngvara hljómsveitarinnar Supernova, að því er segir í tilkynningu frá Skjá einum.
Kosningin fer fram strax að liðnum þættinum og stendur yfir í fjóra tíma. Bæði er hægt að kjósa með því að senda sms skeytið rock bil og svo númer keppandans (Magni er númer 5) í símanúmerið 1900, eða á netinu á slóðinni www.rockstar.msn.com. Sms skeytið kostar 99 kr.
Það er hægt að kjósa eins oft og vilji er fyrir hendi. Upphitun fyrir útsendinguna verður kl.21.30 í kvöld en þá sýnir Skjár einn áheyrnarprufurnar sem fram fóru hér á Íslandi í apríl.
Á föstudagskvöldið kl. 21.30 verður úrslitaþátturinn sýndur en hann fer þannig fram að þeir þrír söngvarar sem fengu fæst atkvæði spreyta sig aftur og dómararnir þrír Tommy Lee úr Motley Crüe, Jason Newstead úr Metallica og Gilby Clarke úr GunsN’Roses velja þann söngvara sem þeim finnst sístur og hann verður sendur heim.