Phil Ritchie, 28 ára tónlistarmaður frá Maryland í Bandaríkjunum, fékk að taka pokann sinn í Rock Star Supernova sjónvarpsþáttunum í nótt en þá voru birt úrslit í atkvæðagreiðslu eftir fjórða þáttinn í fyrrinótt. Magni Ásgeirsson nýtur greinilega hylli áhorfenda en hann var ekki meðal þeirra fimm, sem fæst atkvæði fengu.
Nú eru ellefu þátttakendur eftir en þeir keppast um að fá að syngja með rokksveitinni Supernova en félagarnir í þeirri sveit eru dómarar í þáttunum.