Unnur Birna fegurðardrottning lenti í hremmingum á dögunum í tengslum við bloggfærslu sem hún setti á vef sinn. Þannig var mál með vexti að hún hafði skroppið í kvöldverð sem var til heiðurs henni sjálfri og nýkrýndri „Miss Brazil Mundo" hjá pólska ræðismanninum í Brasilíu.
Eitthvað þótti henni það sem á boðstólum var ekki upp á marga fiska og sagði að eftirrétturinn hefði litið út eins og hún ímyndaði sér „astraltertugubb" og vitnaði þar með til vinsæls lags Stuðmanna.
Þetta þótti aðstandendum keppninnar Ungfrú Alheimur ekki nógu gott og kröfðust þess að færslan yrði tekin út og var því bloggsíða Unnar læst á meðan því fór fram.