Magni Ásgeirsson flytur lagið Smells Like Teen Spirit eftir hljómsveitina Nirvana í næsta þætti Rock Star: Supernova. Magni er nú einn af sjö söngvurum sem eftir eru í þáttaröðinni. Þar syngja þátttakendur rokkslagara í von um að verða næsti söngvari rokksveitarinnar Supernova, sem þeir Gilby Clarke, Tommy Lee og Jason Newstead skipa.