Patrice Pike, bandarísk söngkona frá Texas, var send heim úr sjónvarpsþættinum Rock Star Supernova í kvöld. Magni Ásgeirsson var meðal þeirra þriggja, sem fæst atkvæði fengu en heldur áfram í þáttunum. Sex söngvarar eru eftir og keppa um að fá að syngja með hljómsveitinni Supernova í eitt ár.