Hollywood-stjörnunum Jack Nicholson og Leonardo DiCaprio brá heldur betur í brún þegar villt gaupa birtist óvænt er þeir voru að leika golf saman. Leikararnir, sem vinna nú saman nýrri mynd leikstjórans Martins Scorseses, voru á golfvelli í Los Angeles þegar atvikið á hafa átt sér stað.
Haft er eftir heimildarmanni á vefnum Breakingnews að DiCaprio hafi verið að fá góð golfráð frá Nicholson þegar gaupan birtist allt í einu á 15. holu. „Jack sagði honum að taka til fótanna. Þeir þutu inn í golfvagninn og flýðu,“ segir heimildamaðurinn.