Bandaríski kvikmyndaleikarinn Ben Affleck þakkar Guði fyrir að hafa kynnst eiginkonu sinni, leikkonunni Jennifer Garner, og dóttur þeirra, Violet. „Hvern einasta dag þakka ég Guði fyrir konuna mína. Ég segi það satt, ég veit ekki hvað hún sér við mig,“ er haft eftir Affleck.
Hann segir að um þessar mundir sé fjölskyldan sér mun mikilvægari en leikaraferillinn. Hann kynntist Garner við gerð myndarinnar Daredevil og tæpu ári síðar - í fyrra - gengu þau í það heilaga. Fór athöfnin fram á laun á Karíbahafseyju.
Ástamál Afflecks voru mikið í fréttum þegar hann var í föstu sambandi með Jennifer Lopez. Garner var gift leikaranum Scott Foley í fjögur ár, en þau skildu í mars 2004.