Miðar á Rock Star tónleikana sem fara fram í Laugardalshöll þann 30. nóvember seljast hratt, en miðasala hófst á hádegi. Uppselt er í stúku og aðeins um 2.000 miðar eftir í stæði, en 5.000 miðar verða seldir í heild. Magni, Dilana, Toby Rand og Storm Large ásamt Húsbandinu úr þáttunum koma fram á tónleikunum, auk þess sem hljómsveitin Á Móti Sól spilar efni af væntanlegri breiðskífu.
Miðasala fer fram í verslunum Skífunnar, BT Akureyri, BT Egilsstöðum, BT Selfossi og á www.midi.is, en töluvert álag hefur verið á sölukerfið á midi.is vegna tónleikanna.