Bandaríski fréttamaðurinn Ed Bradley, einn af umsjónarmönnum þáttarins 60 mínútur, lést í dag á sjúkrahúsi í New York úr hvítblæði, að því er sjónvarpsstöðin CBS greinir frá. Bradley var 65 ára. Bradley var umsjónarmaður 60 mínútna í 25 ár og fékk 19 Emmy-verðlaun fyrir störf sín þar.