Michael Jackson olli aðdáendur sínum vonbrigðum er hann kom fram á World Music Awards verðlaunahátíðinni í Bretlandi í gærkvöldi. Söngvarinn þótti sýna skýr merki um sviðsskrekk og átti að sögn áheyrenda erfitt með að ná hæstu tónunum er hann söng lagið „We Are The World”.
Söngvarinn kom fram ásamt barnakór og hafði kórinn sungið mestallt lagið er hann kom loks fram á sviðið. Þá veifaði hann til áhorfenda og kallaði „Ég elska ykkur" áður en flutningi lagsins var lokið.
„Þetta voru mikil vonbrigði. Fólk hafði verið að syngja nafnið hans allt kvöldið og við biðum heillengi áður en hann kom loks fram á sviðið,” sagði einn aðdáenda hans. „Það var kórinn sem söng allt langið. Ég heyrði hann bara söngla nokkrar línur. Hann virtist ruglaður í ríminu og hann reyndi ekki einu sinni að dansa. Það áttu allir von á því að hann syngi „Thriller”. Ef þetta var endurkoma konungs poppsins þá var hún niðurlægjandi."
Jackson var sæmdur Demanta verðlaunum hátíðarinnar fyrir að selja meira en 100 milljónir eintaka af plötum sínum og það var Beyoncé Knowles sem kynnti hann áður en hann steig á svið. „Í kvöld fögnum við 25 árum með „Thriller” sagði hún. „Væri það ekki fyrir Michael Jackson hefði ég aldrei stigið á svið. Ég elska þig. Við elskum þig öll.”
Jackson kvaðst í þakkarræðu sinni hafa fengið draum sinn uppfylltan. „Ég er mjög snortinn af því að hafa fengið þessa viðurkenningu,” sagði hann. „Það var draumur minn að „Thriller” yrði söluhæsta plata sögunnar og Guð hefur svarað þeim bænum mínum. Það hafa svo margir elskað mig og stutt mig. Ég þakka börnunum mínum fyrir óendanlegan stuðning þeirra og ást. Ég þakka einnig móður minni og föður, bræðrum mínum og systrum. Ég elska alla aðdáendur mína frá innstu hjartarótum."