Verðlaunahátíðin Gullkindin verður haldin á Classik Rock í Ármúla fimmtudaginn næstkomandi, en þar eru veitt verðlaun þeim sem þykja hafa staðið sig sérlega ill á árinu. Sérvalin og leynileg dómnefnd, Akademían svokölluð, velur tilnefningarnar hverju sinni og er kosning hafin á vefsíðunni www.xfm.is.
Það eru svo hlustendur XFM 91,9 og aðrir gestir xfm.is sem skipa hina eiginlegu dómnefnd. Hún sker úr um hverjir hafa ,,skarað framúr í klúðri og almennum leiðindum," eins og segir í tilkynningu frá útvarpsstöðinni. Kosning er hafin á vefsíðunni www.xfm.is og þarf ekki að uppfylla nein sérstök skilyrði til að teljast kjörgengur.
Tilnefningar til Gullkindarinnar