Gullkindin var veitt við hátíðlega athöfn í gær. Um er að ræða verðlaun ætluð þeim sem þykja með einum eða öðrum hætti hafa staðið sig sérlega illa á árinu og eru þau veitt í nokkrum flokkum.
Meðal verðlaunahafa ársins má nefna að Evróvisjón-ævintýri Silvíu Nætur var valið klúður ársins, Búbbarnir versti sjónvarpsþátturinn, versta platan Allt sem ég á með Snorra Snorrasyni, verstu sjónvarpsmennirnir allir þrír stjórnendur Innlits-Útlits og fall Unnar Birnu Vilhjálmsdóttur við krýningu ungfrú Íslands 2006 var uppákoma ársins. Vafasamasti heiðurinn, sjálf heiðursverðlaunin, féllu svo Árna Johnsen í skaut.
Árni mætti ekki til að veita verðlaununum viðtöku eins og reyndar var með fleiri verðlaunahafa.