Jennifer Aniston fer í jóga til að takast á við misheppnuð ástarsambönd, og fregnir herma að það sé henni mikill léttir að gráta í jógatímunum. Hún mun vera ákaflega reið Angelinu Jolie fyrir að segja frá því hvernig samband Angelinu við Brad Pitt, fyrrverandi eiginmann Jennifer, hófst.
Fyrr í þessum mánuði var svo staðfest að Jennifer væri hætt með Vince Vaughn.
Caroline Schaefer, aðstoðarritstjóri US Weekly, segir að þetta upplýsingaflóð hafi komið Jennifer algjörlega úr jafnvægi, en henni hafi fundist gott að fara í jóga til að slaka á.
„Hún æfir næstum daglega. Hún grætur í tímum. Þetta hefur verið henni mikill léttir.“
Angelina sagði frá því í síðustu viku að hún hafi fallið fyrir Brad á meðan hann var enn kvæntur Jennifer.