Plötusnúðurinn Adam Goldstein, sem er fyrrum unnusti sjónvarpsstjörnunnar Nicole Richie, er nú sagður vera á höttunum eftir annarri frægri kærustu þar sem tekjur hans hafi lækkað umtalsvert eftir að slitnaði upp úr níu mánaða trúlofun þeirra.
Ónafngreindur vinur Adams, sem kallar sig DJ AM, segir í viðtali við bandaríska blaðið New York Post að hann hafi beðið vini sína um að koma sér á stefnumót með þekktri stúlku. „Grundvallaratriði málsins er það að hann veit að hann getur farið fram á mun hærri laun ef hann á fræga kærustu. Hann hefur þurft að lækka gjaldskrá sína töluvert frá því hann hætti með Nicole," segir vinurinn.