George W. Bush, Bandaríkjaforseti, og Laura kona hans minntust í dag tónlistarmannsins James Brown, sem lést í nótt, 73 ára. Segja Bush-hjónin í yfirlýsingu, að Brown hafi verið bandarískur frumherji, sem hafi í hálfa öld auðgað bandaríska menningu og haft áhrif á margar kynslóðir tónlistarmanna.