Líkt og undanfarin ár er maður ársins valinn á Rás 2 nú á milli jóla og nýárs en í fyrra var Thelma Ásdísardóttir fyrir valinu hjá hlustendum Rásar 2. Tilkynnt verður um valið í áramótaþætti Rásar 2 á gamlársdag milli klukkan 13 og 16.
Hlustendur Rásar 2 velja mann ársins með því að hringja í síma 5687 123 eða senda tölvupóst á netfangið 2006@ruv.is
Bestu plötur ársins
Hlustendur Rásar 2 tilnefna 5 bestu íslensku og 5 bestu erlendu plötur ársins 2006 með því að senda tölupóst á netfangið poppland@ruv.is. Í fréttatilkynningu kemur fram að tilkynnt verður um úrslit í þættinum Popplandi á nýju ári.