Leikkonan Lindsay Lohan var flutt með hraði á sjúkrahús í gær með botnlangabólgu og var botnlangi hennar fjarlægður.
Leikkonan tilkynnti sig veika á miðvikudag en hún er að leika í kvikmynd sem nefnist „I Know Who Killed Me" en hún hélt að hún væri með flensu. Þegar hún fór til læknis kom í ljós að um botnlangabólgu var að ræða.