Sambýliskona James Brown, Tomi Rae Hynie og fimm ára sonur þeirra voru ekki nefnd í erfðaskrá hans. James heitinn Brown mun hafa séð til þess að sex eldri börn hans þurfi ekki að líða skort en James Jr og Hynie voru skilin eftir útundan.
Samkvæmt lögfræðingi Hynies hafði hún ekki hugmynd um að hún væri ekki í erfðaskránni.
Hún fékk ekki aðgang að húsi þeirra hjónaleysa eftir andlát Browns því það mun hafa verið skráð á sjóð í umsjón fjárhaldsmanns frá 2000 og því var lokað uns erfðamálin hafa verið gerð upp.