Ólafur Geir Jónsson, sem sviptur var titlinum herra Ísland árið 2005, hefur fengið gjafsókn til að höfða skaðabótamál gegn forsvarsmönnum Fegurðarsamkeppni Íslands. Fram kom í fréttum Sjónvarpsins, að Ólafur Geir telur sig hafa misst vinnuna fyrir bragðið og orðið fyrir ærumeiðingum. Ráðgert er að málið verði þingfest í byrjun febrúar.