Bandaríski kvikmyndaleikarinn Ryan O'Neal var handtekinn í Kalíforníu í gær eftir að hafa lent í átökum við Griffin son sinn. Lögregla handtók O'Neal á heimili hans á Malibu í gær vegna gruns um að hann hefði framið árás og hleypt af skotvopni.
Að sögn fjölmiðla var O'Neal í haldi í fimm stundir áður en honum var sleppt. Lögregla sagði að um hefði verið að ræða fjölskyldudeilur. Griffin O'Neal, sem er 42 ára, meiddist ekki en 22 ára gömul kona hlaut áverka, þó ekki af völdum byssu.
Ryan O'Neal, sem er 65 ára, eignaðist Griffin með leikkonunni Joanna Moore. Þau eignuðust einnig dótturina Tatum O'Neal. O'Neal eignaðist einnig sonunn Redmond með leikkonunni Farah Fawcett.
Ryan O'Neal lék m.a. í sápuóperunni Peyton Place á árunum 1964 til 1969 en öðlaðist heimsfrægð þegar hann lék í myndinni Love Story. Þá lék hann í myndinni Paper Moon ásamt Tatum dóttur sinni.