Belgíska lögreglan kom nýlega upp um nýstárlega fölsunarstarfsemi, en komið var upp um glæpamannahring sem stundaði það að falsa styttur af blaðamanninum knáa Tinna. Stytturnar voru gerðar upptækar í bænum Tournai, nærri frönsku landamærunum. Nú stendur til að eyðileggja þær en í tilefni þess voru þær sýndar, enda haglega gerðar falsanir.