Þeir Magnús Scheving og Jonathan Judge voru í dag tilnefndir til Emmy verðlaunanna fyrir leikstjórn Latabæjarþáttanna Þetta er í annað sinn sem Latibær er tilnefndur til Emmy verðlauna fyrir barnaefni. Verðlaunin verða veitt í Kodak leikhúsinu í Hollywood í júní.
Í leikstjóraflokknum eru einnig tilnefndir leikstjórar þáttanna It's a Big Big World, og Sesame Street.