Valentínusardagurinn, dagur elskenda, er á morgun, og víða um heim gera menn sér dagamun. Í Japan er siður að konur gefi körlum súkkulaði og nú býður líkamsræktarstöð meðal annars upp á nýjung í tilefni dagsins: súkkulaðibað, sem sagt er vera fyrir karla og konur á öllum aldri. Baðvatnið er blandað með kakódufti og er látið fylgja, að óhætt sé að bragða á baðvatninu.