Þessi tæplega tveggja metra langa styrja veiddist í Winnebago-vatni í Wisconsin á sunnudaginn. Veiðimaðurinn, Darren Horness, liggur við hliðina á feng sínum.
Styrjan mældist 183 sentimetrar og 102 pund. Horness veiddi hana með skutli niður um ís. Um átta þúsund manns stunda að jafnaði styrjuveiðar á ísnum á Winnebagovatni. Horness hefur fiskað þar í sjö ár, en aldrei komist í tæri við slíkan risafeng sem þennan.