Dómari reyndi án árangurs í dag að miðla málum í deilu aðstandenda leikkonunnar Önnu Nicole Smith um það hvenær eigi að jarða hana og hvar, í herbergi dómshúss í Flórída. Anna fannst látin 8. febrúar síðastliðinn.
Þó svo niðurstaða fáist um það hvenær veita eigi Smith hinstu smurningu á enn eftir að ná sáttum um hvar Smith skuli jarðsett. Þá er einnig deilt um forræði yfir dóttur hennar á fyrsta ári.