Kelly Osbourne, sem helst hefur unnið sér það til frægðar að vera dóttir Sharon og Ozzy Osbourne, greindi frá því á tónleikum til stuðnings HIV-smituðum í Lundúnum í gærkvöldi að einn úr fjölskyldunni hefði greinst HIV-smitaður.
Sagði Kelly frá því að málefnið skipti sig því miklu máli. Að sögn ljósmyndara sem voru á tónleikunum í Camden í Lundúnum var Kelly grátandi þegar hún fór af sviðinu.
Osbourne-fjölskyldan varð sjónvarpsvinur á mörgum heimilum fyrir nokkrum árum er raunveruleikaþættir með fjölskyldunni voru sýndir á sjónvarpsstöðinni MTV.