Leikkonan Marcia Cross, sem leikur Bree í sjónvarpsþáttunum "Aðþrengdar eiginkonur" fæddi tvíburadætur á þriðjudag. Stúlkurnar, sem eru fyrstu börn hennar og eiginmanns hennar Tom Mahoney, hafa hlotið nöfnin Eden og Savannah. Þetta kemur fram á fréttavef CNN.
Cross, sem er 44 ára, og börnunum mun heilsast vel.