Dóttir Önnu Nicole Smith, Dannielynn, verður enn um sinn í umsjá Howards K. Sterns, fyrrverandi sambýlismanns Önnu, en dómari á Bahamaeyjum frestaði í gær úrskurði í barnsfaðernismálinu þar til í næsta mánuði.
Bæði móðir Önnu og ljósmyndarinn Larry Birkhead gerðu tilkall til umsjár með Dannielynn, sem er um hálfs árs gömul, fyrir réttinum í gær.
Á fæðingarvottorði stúlkunnar er Stern sagður faðir hennar, en auk hans hafa þrír menn lýst því yfir að þeir séu faðir hennar, og einnig hefur fyrrverandi eiginmaður Önnu, sem er látinn, verið sagður faðirinn þar sem hún hafi notað fryst sæði úr honum.