Áfrýjunardómstóll í Flórída í Bandaríkjunum hefur staðfest fyrri úrskurð um að fyrirsætan Anna Nicole Smith skuli jarðsett hjá syni sínum á Bahama eyjum. Móðir Önnu Nicole hefur barist fyrir þvi að dóttir hennar verði jarðsett í Texas en úrskurðaði áfrýjunardómstóllinn að það hafi verið ósk hinnar látnu að verða jarðsett hjá syni sínum. Jarðarförin verður líklega haldin síðar í þessari viku.