Getum hefur verið að því leitt að Britney Spears sé tekin saman við Kevin Federline á ný eftir að sást til hennar á leið á AA-fund með hring á fingri.
Fregnir herma að Britney hafi verið glaðleg að sjá þegar hún fór á AA-fund í Malibu með fylgdarliði frá Promises-meðferðarstöðinni þar sem hún hefur nú dvalið í viku.
Á vinstri baugfingri hafði hún hring, og eitthvað var krotað á höndina. Þóttust skarpskyggnir blaðamenn greina þar orðið „PUSH“ (skammstöfun fyrir „Pray Until Something Happens“).
Á höfði hafði hún brúna hárkollu og sixpensara.
Eru bandarískir fjölmiðlar uppfullir af vangaveltum um að Britney sé tekin saman við Federline á ný, enda ekki langt síðan hann lýsti því yfir að hann elskaði hana enn.