Bandaríski leikarinn Leonardo diCaprio er sagður væntanlegur til landsins í dag ásamt tökuliði tímaritsins Vanity Fair, en til stendur að taka ljósmyndir uppi á Snæfellsjökli.
Þessu heldur Fréttablaðið fram í dag og segir íslenska framleiðslufyrirtækið True North ætl að aðstoða tökuliðið. True North vildi ekkert um málið segja þegar Fréttavefur Morgunblaðsins hafði samband við það í morgun.