Leikarinn Brad Pitt er sagður hafa áhyggjur af holdafari unnustu sinnar, leikkonunnar Angelinu Jolie. Hún borði og sofi lítið og hugsi lítið um eigið heilsufar. Jolie missti nýverið móður sína og þykir það líkleg skýring á því að hún hafi horast.
Breska glanstímaritið Grazia hefur eftir ónefndum heimildarmanni að Jolie verji öllum sínum tíma í að hugsa um börnin sín og starf sitt sem velgjörðarsendiherra Sameinuðu þjóðanna. Þá sé hún þjökuð af þeirri athygli sem samband þeirra Pitt fær og einnig því að hafa komið upp á milli Pitt og eiginkonu hans fyrrverandi, Jennifer Aniston.