Meðferðarstofnun í Kaliforníu hefur kært söngkonuna Courtney Love fyrir að hafa ekki greitt reikninginn fyrir meðferð sem hún fór í. Hljóðar reikningurinn upp á 181 þúsund Bandaríkjadali.
Ítrekað hefur verið reynt að fá Love til þess að greiða reikninginn en hún dvaldi á meðferðarstofnuninni Beau Monde árið 2005 vegna eiturlyfjafíknar. En dómari skikkaði söngkonuna í meðferð á sínum tíma.